Entries by Sigurður Arnarson

„Tímabil sköpunarverksins“, guðsþjónusta 16. september kl.11:00 í Kópavogskirkju

Uppskeruguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 16. september n.k. kl.11:00 á Degi íslenskrar náttúru. Gerður Magnúsdóttir, leikskólakennari talar um efnið frá sínu hjarta. Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fluttar verða bænir og ritingarlestrar og sungnir sálmar sem tengjast náttúrunni og sköpuninni. Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins

Mál dagsins hefur aftur göngu sína í haust, n.k. þriðjudag 4. september kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 er flutt erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.

Fermingarstarfið

Síðsumarnámskeið verður 20. til 22 ágúst, 2018 frá kl. 9:15-13:30 í safnaðarheimilinu Borgum (20. ágúst lýkur fræðslunni kl. 12:10 í stað 13:30). Gott væri að fermingarbörnin kæmu með nesti með sér á hverjum fræðsludegi. Vetrarfermingarfræðsla verður vikulega næsta vetur frá og með september, 2018 í safnaðarheimilinu Borgum (nánar tilkynnt síðar). Messur kl. 11:00 þann 19. […]