Barna- og fjölskylduguðsþjónusta, sunnudagaskólinn hefst eftir frí
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 6. september n.k. kl. 11:00. Þá hefst sunnudagaskólinn aftur eftir frí. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir stundina ásamt sunnudagaskólakennurum. Börn úr Kársnesskóla syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.