Foreldramorgnar á fimmtudögum
Foreldramorgnar eru vikulega yfir veturinn á fimmtudögum frá kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Umsjón með starfinu hefur Ólafía Lindberg Pétursdóttir.
Foreldramorgnar eru vikulega yfir veturinn á fimmtudögum frá kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Umsjón með starfinu hefur Ólafía Lindberg Pétursdóttir.
Vikulegt starf er fyrir börn í 1.-4. bekk á miðvikudögum í safnaðarheimilinu Borgum. 3.-4. bekkur hittist þar kl. 14:00-15:00 og 1.-2. bekkur frá kl. 15:30-16:30. Boðið er upp á náð sé í börnin í Dægradvöl Kársnesskóla.
Allir velkomnir.
Æskulýðsfundir eru fyrir 8. bekk á þriðjudagskvöldum frá kl. 20:00-21:30 í safnaðarheimilinu Borgum.
Umsjón með fundunum hafa: Ýr Sigurðardóttir, Ágústa Tryggvadóttir, Helgi Steinn Björnsson og Bjarmi Hreinsson.
Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 26. október n.k. kl.11:00. Sr. Hjörtur Pálsson, prédikar og fjallar sérstaklega um sr. Hallgrím Pétursson. Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari. Sungnir verða sálmar eftir sr. Hallgrím. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Sunnudagaskólinn er í umsjón: Ágústu Tryggvadóttur, Bjarma Hreinssonar og Odds Arnar Ólafssonar. Eftir guðsþjónustu mun dr. Margrét Eggertsdóttir flytja erindi um sr. Hallgrím í safnaðarheimilinu Borgum.
Allir velkomnir.
Fermingarfræðsluferð verður í Vatnaskóg 23. október n.k. Lagt verður kl. 08:00 af stað frá Kópavogskirkju og komið til baka um kl. 21:00.
Nauðsynlegt er að sótt sé um leyfi fyrir ferðalaginu í viðkomandi grunnskóla.
Mál dagsins verður þriðjudaginn 21. október n.k. kl. 14:30-16:00. Stundin hefst að venju á samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar. Um kl. 15:10 mun Ingibjörg Steingrímsdóttir flytja erindi um Bráræðisholtið í Reykjavík. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.
Allir velkomnir.
Fermingarfræðsla mánudaginn 20. október kl.15:10 fellur niður vegna þess að vetrarfrí er í Kársnesskóla. Næsti vetrarfermingarfræðslutími er 27. október n.k. kl. 15:10.
Guðsþjónusta verður 19. október kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni en flyst svo í safnaðarheimilið Borgir.
Fermingarfræðsla fyrir þau sem sækja vetrarfræðslu og sóttu síðsumarsfræðslu verður þriðjudaginn 14. október kl. 19:30-22:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Foreldrar fermingarbarnanna eru einnig velkomin.
Ragnar Bragason, kvikmyndleikstjóri mun sýna kvikmynd sína “Málmhaus” og fjalla um hana.
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.