Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 23. september kl. 11:00. Sr. Sighvatur Emil Karlsson, settur héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Hrafnkels Karlssonar. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.
https://www.kopavogskirkja.is/wp-content/uploads/2018/02/kopavogskirkja_logo.png00Sigurður Arnarsonhttps://www.kopavogskirkja.is/wp-content/uploads/2018/02/kopavogskirkja_logo.pngSigurður Arnarson2019-09-16 18:35:162019-09-16 18:35:18Guðsþjónusta 23. september kl.11:00
Fyrirbænastund þann 17. september fellur niður vegna Aðalsafnaðarferðar í Borgarfjörð
https://www.kopavogskirkja.is/wp-content/uploads/2018/02/kopavogskirkja_logo.png00Sigurður Arnarsonhttps://www.kopavogskirkja.is/wp-content/uploads/2018/02/kopavogskirkja_logo.pngSigurður Arnarson2019-09-16 18:33:212019-09-16 18:33:23Bænastund fellur niður 17. september
Í fyrsta
tímanum fórum við í nafnaleik með Sigga og Ástu. Þannig gátu þau betur lært nöfnin okkar.
Eftir leikinn fór Siggi yfir bækurnar sem við notum í fræðslunni fyrir
ferminguna og að lokum sögðu þau okkur frá starfi prestsins og djáknans, en
presturinn getur t.d. gift fólk, skírt börn og fermt unglinga en djákninn getur
aðstoðað prestinn. Djákninn getur sinnt mörgum öðrum störfum eins og t.d.
sálgæslu. Við tókum frímínútur og eftir það fórum við í útileiki sem var mjög
skemmtilegt. Við borðuðum nesti og spjölluðum saman. Síðan fóru stelpurnar með
Ástu í kapelluna og hún las upp úr kaflanum um sjálfstraust og sjálfsálit í
bókinni Con Dios en þar var mikið rætt um hvað það er mikilvægt að standa með
sjálfum sér. Á meðan voru strákarnir með
Sigga.
20. ágúst
Dagur 2
Í þessum
tíma kom Kristín frá Hjálparstarfi Kirkjunnar og sagði okkur frá þeirra starfi.
Það var mjög áhugavert og það kveikti áhuga minn á að taka þátt í slíku starfi.
Við fórum einnig í frímínútur.
Helga kom og
sagðu frá kristniboði og sagði okkur sögur frá starfi sínu í Eþíópíu þar sem
hún hafði búið í mörg ár. Eftir það borðuðum við nesti og skelltum okkur aftur í útileiki. Þegar við
höfðum leikið okkur fórum við með Ástu í kaflann um bænir og ræddum um hvenær
og hvar er gott að biðja en það getur verið hvenær og hvar sem er.
21. ágúst
Dagur 3
Þriðja
daginn töluðum við mikið um Biblíuna með Sigga. Hann sagði okkur frá Nýja
Testamentinu og Gamla Testamentinu en einnig frá því að Biblían er sú bók sem
mest hefur verið gefin út í heiminum.
Við töluðum
heilmikið um Guð og allir fengu að skrifa niður það sem þeim finnst Guð vera.
Ég skrifaði að mér fyndist Guð vera eins og andi. Að hann væri allstaðar og
fylgdist með okkur, inni í okkur öllum. Að hann gæti talað við alla á sama tíma
og að hann elskaði okkur öll.
Við ræddum
líka um Jesú og hvað hann er í raun og veru fyrir okkur, hverju og einu okkar.
Hann býr í öllu fólki og gefur því styrk til að takast á við lífið. Og svo
margt, margt fleira.
22. ágúst
Dagur 4
Síðasta daginn í fermingarfræðslunni byrjuðum við í kirkjunni þar sem Siggi sagði okkur frá listaverkunum í henni. Gluggarnir eru mjög merkilegir, það tók listamanninn, Gerði Helgadóttur mörg, mörg ár að búa þá til. Og það er svolítið merkilegt að listaverkin í kirkjunni eru flest gerð af konum. Siggi sagði okkur líka frá prestklæðunum .
Síðustu
tímana fórum við í leiklistarleiki með Magga og Gunnari en Gunnar leikstýrði
kvikmyndinni Gauragangi eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Við enduðum
fræðsluna með leikriti sem við krakkarnir bjuggum til sjálf út frá sögu úr
Biblíunni.
Þetta hafa
verið mjög skemmtilegir og fróðlegir dagar í fermingarfræðslunni.
Sunnudaginn 15. september n.k. er “Dagur kælreiksþjónustu” í kjunni. Í útvarpsguðsþjónustu kl. 11:00 í Kópavogskirkju mun Ásta Ágústsdóttir, djákni prédika og sr. Sigurður Arnarson þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur.
https://www.kopavogskirkja.is/wp-content/uploads/2018/02/kopavogskirkja_logo.png00Sigurður Arnarsonhttps://www.kopavogskirkja.is/wp-content/uploads/2018/02/kopavogskirkja_logo.pngSigurður Arnarson2019-09-11 14:08:562019-09-11 14:08:58Útvarpsguðsþjónusta 15. september kl. 11:00
Starfið er ætlað unglingum. Fundir eru vikulega á fimmtudagskvöldum frá kl. 20:00-21:30 í safnaðarheimilinu “Borgum”. Félagar úr starfinu munu ganga í hús í sókninni frá kl. 18:00-20:00 þriðjudaginn 29. október og safna fé fyrir Hjálparstarf Kirkjunnar. Einnig munu þau taka þátt í verkefninu “Jól í skókassa”. Þrjár fermingarfræðslur verða á æskulýðsfundunum fram að fermingum í vor og foreldrar og forráðafólk tekur þá einnig þátt. Fjallað verður þá um: “Ég á bara eitt líf” , “ábyrgð og að setja mörk” og “sorg og sorgarviðbrögð.
3. nóvember, kl.11:00. Guðsþjónusta Ásta Ágústsdóttir, djákni prédikar Látinna minnst. Samvera á eftir í safnaðarheimilinu “Borgum” þar sem, fjallað verður um “sorg og sorgarviðbrögð” vegna andláta.
10. nóvember, kl.11:00. Barna- og fjölskylduguðsþónusta. Sóknarprestur og sunnudagaskólaleiðtogar. Skólakór Kársnes syngur.
17. nóvember, kl.11:00. Bókmenntaguðsþjónusta.
24. nóvember, kl.11:00. Tónlistarmessa. Sr. Sighvatur Karlsson, settur héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.
1. desember kl.11:00 Barna- og fjölskylduguðsþónusta. Sóknarprestur og sunnudagskólaleiðtogar. Skólakór Kársnes syngur. Jólaball á eftir í safnaðarheimilinu “Borgum”.
8. desember, kl.11:00. Guðsþjónusta.
15. desember, kl.11:00. Guðsþjónusta.
22. desember, kl.11:00. Guðsþjónusta. Settur héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.
24. desember, kl.15:00. “Beðið eftir jólunum”. Sóknarprestur og sunnudagaskólaleiðtogar. Skólakór Kársnes syngur.
Mál dagsins verður þriðjudaginn 10. september n.k. (vikulega yfir veturinn) og hefst með samsöng kl. 14:30, sem Friðrik A. Kristinsson og Lenka Mátéová leiða. Kl.15:10 mun Sigurður Arnarson, sóknarprestur segja frá Modena á Ítalíu. Kl. 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.