Sunnudagaskólinn 24. september kl.11:00
Sunnudagaskóli verður 24. september kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Starfsmenn sunnudagaskólans í vetur eru: Birgir, Gríma, Anna Lovísa og Jóhanna. Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudagaskóli verður 24. september kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Starfsmenn sunnudagaskólans í vetur eru: Birgir, Gríma, Anna Lovísa og Jóhanna. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Kór Kópavogskirkju heldur tónleika í safnaðarheimilinu Borgum miðvikudaginn 13. september n.k. kl.20:00. Stjórnandi er Lenka Mátéová. Píanóleikari er Peter Máté. Léttar veitingar verða í boði og aðgangseyrir er 2000kr. Posi er ekki á staðnum.
Farið verður þriðjudaginn 19. september kl. 09:45 frá safnaðarheimilinu Borgum. Haldið verður í vesturbæ Reykjavíkur og þar staðarskoðun að hætti sr. Sigurðar Arnarsonar. Klukkan 10:30 tekur Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands á móti hópnum í Veröld húsi stofunar Vigdísar Finnbogadóttur, síðan verður húsið og starfsemi þess skoðuðu. Klukkan 12:15 verður hádegisverður á Hotel Natura og Pétur J. Johnsson mun segja frá Reykjavíkur flugvelli og einhverjum flugvélum, sem þar hafa haft viðkomu á leið sinni yfir hafið. Klukkan 13:30 verður haldið, sem leið liggur í Mosfellsdal og hann skoðaður undir leiðsögn Bjarka Bjarnason. Gljúfrasteinn Halldórs Laxnes verður heimsóttur. Áætluð heimkoma í safnaðarheimilið Borgir er um kl.17:00. Ferðin kostar 6.000 kr og ferðir og matur og kaffi eru innifalin. Allir hjartanlega velkomnir. Sætaframboð er takmarkað og skráningu á skrifstofu safnaðarins (sími: 5541898, opið virka daga á milli 9-1) lýkur 15. september n.k.
Næsti sunnudagaskóli verður sunnudaginn 17. september kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Gleði og gaman í hávegum haft. Umsjón með skólanum hafa: Gríma Ólafsdóttir, Anna Lovísa Daníelsdóttir, Birkir Bjarnason og Jóhanna Elísa Skúladóttir. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta verður sunnudaginn 17. september n.k. kl.11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins verður 12. september. Stundin hefst á samsöng kl.14:30 undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 heldur Svava Jóhannsdóttir erindi um tangó og tekur lagið. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Fyrirbænastundir eru í Kópavogskirkju á þriðjudögum kl. 13:45. Hægt er að koma fyrirbænaefnum með því að senda tölvupóst: kopavogskirkja.is eða hringja á skrifstofu kirkjunnar, á virkum dögum á milli 9-13 (5541898).
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 10. september n.k. klukkan 11:00. Sunnudagaskólinn tekur þátt í guðsþjónustunni. Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.