Mál dagsins 2. maí n.k.
Mál dagsins verður þriðjudaginn 2. maí n.k. kl. 14:30-16:00. Friðrik Kristinsson og Lenka Mátéová leiða söng. Erindi verður flutt kl. 15:10-15:30. Kaffi og meðlæti. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.
Mál dagsins verður þriðjudaginn 2. maí n.k. kl. 14:30-16:00. Friðrik Kristinsson og Lenka Mátéová leiða söng. Erindi verður flutt kl. 15:10-15:30. Kaffi og meðlæti. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.
Messa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 30. apríl n.k. kl.11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 23. apríl n.k. kl.11:00. Félagar úr þriðja og fjórða bekk Kársnesskóla syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Umsjón með stundinni hafa sr. Sigurður, Bragi Árnason og Leif Kristján Gjerde. Á eftir verður boðið upp á pylsur og djús við safnaðarheimilið Borgir. Hoppukastalarar verða á svæðinu og að sjálfsögðu eru allir hjartanlega velkomnir.
Skírdagur 13. apríl, kl. 11:00
Fermingarmessa
Skírdagur 13. apríl, kl. 13:15
Altarisganga á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
Föstudagurinn langi 14. apríl, kl. 11:00
Guðsþjónusta
Föstudagurinn langi 14. apríl, frá kl.13:00
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir upp í heild sinni í Kópavogskirkju. Upplesturinn hefst kl. 13:00 og lýkur um það bil kl. 18:00. Lesari er Sigurður Skúlason. Nokkur hlé verða gerð á lestrinum og þá munu kór Kópavogskirkju og einsöngvarar Ólafía Linberg Jensdóttir og Þórunn Elín Pétursdóttir ásamt Lenku Mátéovu organista flytja tónlist eftir Bach, Fauré, Mozart, Ola Gjeilo, Jakob Tryggvasson og Þorkell Sigurbjörnsson. Fólki frjálst að koma og fara meðan á flutningi stendur.
Páskadagur 16. Apríl kl. 08:00
Hátíðarguðsþjónusta. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sungið er hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Á eftir hátíðarguðsþjónustu verður boðið upp á morgunnverðarhlaðborð í safnaðarheimilinu Borgum en umsjón með því hafa félagar í Kór Kópavogskirkju. Að því loknum um kl. 9:45 verður haldið í gönguferð um götuna Hófgerði á Kársnesi. Leiðsögumenn verða gamlir íbúar úr götunni. Gangan er farin í samvinnu við Sögufélag Kópavogs.
Næsta Mál dagsins verður þriðjudaginn 18. apríl n.k. kl. 14:30-16:00. Allir hjartanlega velkomnir.
Fermingarmessa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 9. apríl n.k. kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari með Ástu Ágústsdóttur, djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Prjónahópur næsta fimmtudagskvöld þann 30.mars í safnaðarheimilinu Borgum kl 19.30 – 22.00.
Sr.Karl Sigurbjörnsson kemur í heimsókn og mun tala um handverk móður sinnar, Magneu Þorkelsdóttur.
Eftir hana liggur mikið og einstaklega fallegt handverk.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kærleikssmiðjan, sem starfrækt hefur verið í safnaðarheimilinu Borgum hvern sunnudag, er nú komin í pásu til sunnudagsins 23. apríl.
Þau börn sem hafa sótt smiðjuna hafa, frá áramótum, unnið með söguna Miskunnsami Samverjinn í gegnum hin ýmsu listform: tónlist, leiklist, skúlptúragerð og nú síðast ljósmyndun. Síðasta sunnudag fengu börnin að velja sér orð til að nota sem innblástur í ljósmyndir og völdu þau orðið: Fyrirgefa.
Kennarar smiðjunnar aðstoðuðu börnin við að finna myndefni og stilla því upp og úr varð aldeilis skemmtileg myndasería. Hér fyrir neðan er hluti af seríunni en seríuna í heild sinni má skoða á uppskeruhátíð Kærleikssmiðjunnar sem haldin verður í fjölskyldumessu í Kópavogskirkju, sunnudaginn 23. apríl klukkan 11.00. Á uppskeruhátíðinni verða einnig flutt lög sem börnin hafa samið í samvinnu við kennara, skúlptúrar barnanna afhjúpaðir og hver veit nema fullorðna fólkið fái að taka virkan þátt í frumsömdu leikriti barnanna um náungakærleikann.
Fermingarmessa verður sunnudaginn 2. apríl kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Mál dagsins verður þriðjudaginn 28. mars kl. 14:30-16:00. Starfið hefst með samsöng undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Klukkan 15:10 flytur Snorri Birgisson, lögreglumaður fyrirlestur um „Mannsal“. Klukkan 15:30 er kaffi. Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.