Hátíðarguðsþjónusta á jóladag
Hátíðarguðsþjónusta verður á jóladag kl.14:00 í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið.
Hátíðarguðsþjónusta verður á jóladag kl.14:00 í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið.
Aftansöngur verður í Kópavogskirkju á aðfangadag, 24. desember n.k. kl. 18:00. Ásta Ágústsdóttir, djákni prédikar og sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur þjónar fyrir altari. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Tónlist verður flutt í kirkjunni frá kl. 17:30. Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.
Fjölskyldustund í Kópavogskirkju kl. 15:00 á aðfangadag. Jólaguðspjallið og jólasálmar sungnir. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta verður 18. desember n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Kirkjuhlaup í Kópavogi verður miðvikudaginn 14. desember n.k. kl. 17:30 frá Hjallakirkju. Sungin verður jólasálmur og svo lagt af stað. Hlaupið er í samvinnu við Þríkó hópinn í Breiðabliki. Boðið er upp á 7 km eða 11 km leið á milli kirkna og kapella í Kópavogi. Að loknu hlaupi er boðið upp á hlaupavænar veitingar í Hjallakirkju. Ekkert þátttökugjald og allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins þann 13. desember hefst að venju kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 munu prestarnir Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Guðmundur Karl Brynjarsson segja frá nýútgefnum bókum sínum. Kl. 15:30 verður drukkið kaffi. Stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00. Næsta Mál dagsins eftir jólafrí verður svo þriðjudaginn 17. janúar. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins hefst þriðjudaginn 6. desember n.k. kl.14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 flytur Pétur Einarsson fyrirlestur um heimildarmyndina „Rannsaked“ og svarar fyrirspurnum. Um kl.15:30 er drukkið kaffi. Stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
„Kom engill til mín“. Miðvikudagur 7. desember kl. 20:00-21:00.Aðventutónleikar Kórs Kópavogskirkju í safnaðarheimilinu Borgum. Fjölbreytt hátíðleg og hlýleg aðventu- og jólalög flutt. Stjórnandi Lenka Mátéová. Meðleikari Peter Máté. Engin aðgangseyrir og boðið upp á heitt kakó og smákökur eftir tónleika.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 4. desember n.k. og hefst kl. 11:00. Sungið verður meðal annars; „Kærleikslagið“ úr sunnudagasmiðju. Skólakár Kársnes syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Á eftir verður jólaball í safnaðarheimilinu Borgum. Dansað kringum jólatré og von er á rauðklæddum gestum. Enginn aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir.
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.