Messa 14. febrúar kl.11:00
Messa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 14. febrúar n.k. kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkju.
Messa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 14. febrúar n.k. kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkju.
Fermingarstarfið frá janúar til mars 2016
Æskulýðsfundir hefjast aftur 2. febrúar n.k. kl.20:00-21:30 í safnaðarheimilinu Borgum.
Vetrarfermingarfræðsla (þau sem eru ekki í síðsumarfermingarfræðslunni) Tímar í febrúar, 1,8,15,22,29 Tímar í mars, 7, (próf)
Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp): 22. febrúar og 7. mars, 2016.
Kennt er frá kl. 16:00-16:40
Mátun fermingarkyrtla verður eftir fermingarfræðslu 22. febrúar n.k.
Kyrtilgjald er 1000 kr
Fundur verður með fermingarbörnumog foreldrum eftir messu kl.11:00 sunnudaginn 31. janúar, 2016 og þá verður rætt um fermingarathöfnina og framkvæmd hennar.
Fermingardagar 2016 verða sem hér segir:
Pálmasunnudagur 20. mars kl. 11:00
Skírdagur 24. mars, 2016 Kl. 11:00 Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir í fermingarnar.
Æfingar fyrir fermingar eru í Kópavogskirkju (miklvægt að allir séu á æfingum):
Pálmasunnudag 20. mars, kl. 11:00, þá verður æft 17. og 18. mars kl. 16:00-17:00.
Skírdag 24. mars, kl.11:00, þá verður æft 21. og 22. mars, kl. 16:00-17:00.
Kópavogskirkja á heimasíðu:
www.kopavogskirkja.is
Þar leitumst við að hafa allar upplýsingar um starfið og ýmsa aðra þætti.
VIÐ NOTUM TÖLVUPÓST Í SAMSKIPTUM (kopavogskirkja@kirkjan.is)
MIKILVÆGT AÐ FÁ NETFÖNG FERMINGARBARNA OG FORELDRA TIL AÐ ALLAR UPPLÝSINGAR BERIST GREIÐLEGA
Gátlisti fyrir próf í fermingarfræðslu í Kársnessókn, 7. mars, 2016
Til prófs er efni úr bókunum: „Con Dios“ og Kirkjulykilinn.
Spurningar úr „Con Dios“
Spurningar úr „Kirkjulyklinum
Faðirvorið eða Bæn Drottins eins og hún er oft nefnd er bænin sem Jesús kenndi fólki þegar það bað hann um að kenna sér að biðja. Þessi bæn er beðin út um allan heim af milljónum manna og hefur verið beðin í u.þ.b. 2000 ár á ýmsum tungumálum. Margir hafa lært hana utan að sem börn en lítið velt fyrir sér merkingu hennar á fullorðinsárum. En þessi bæn er mjög innihaldsrík við nánari skoðun. Hún er góð fyrirmynd annarra bæna og því tilvalin til þess að byggja bænalíf sitt á.
Miðvikudaginn 10. febrúar hefst námskeið um Faðirvorið í Árbæjarkirkju. þar sem rætt verður um bæn og bænaiðkun út frá bæninni sem Jesús kenndi. Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja vita meira um Faðirvorið og bænalíf eða hafa áhuga á kristindómnum og vilja dýpka skilning sinn á kristinni trú. Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur, á miðvikudagskvöldum frá kl:19:30-21:30. Það hefst 10. febrúar og lýkur 16. mars. Námskeiðið er öllum opið og kostar 3000 krónur. Leiðbeinandi er sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Skráning fer fram á netfanginu: petrina@arbaejarkirkja.is og í gegnum síma Árbæjarkirkju: 587-2405
Næsta „Mál dagsins“ verður þriðjudaginn 9. febrúar n.k. kl. 14:30 í safnaðarheimilinu og hefst að venju með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Máteóvá. Klukkan 15:10 flytur Anna Klara Georgsdóttir frá Kópavogsbæ erindi um móttöku bæjarins á flóttamönnum frá Sýrlandi. Klukkan 15:30 verður drukkið kaffi. Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund. Allir velkomnir.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 7. febrúar n.k. kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson og Þóra Marteinsdóttir leiða stundina. Félagar úr 3. bekk í Skólakór Kársnes syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Barn borið til skírnar. Sunudagskólinn tekur þátt í stundinni. Allir hjartanlega velkomnir.
Nýlega tók Björg Eysteinsdóttir meðfylgjandi mynd af kirkjunni.
Prjónahópur Kópavogskirkju hittist 1 og 3 fimmtudag í hverjum mánuði í safnaðarheimilinu Borgum kl.20:00. Allir hjartanlega velkomnir.
Miðvikudaginn 27. janúar síðastliðinn fór fram frá Kópavogskirkju útför Guðmundínu Oddbjargar Magnúsdóttur eða Mundu eins og hún var kölluð. Munda var búsett í sókninni í áratugi. Hún skar ýmislegt út í tré meðal annars gestabók með Kópavogskirkju framan á. Meðfylgjandi ljósmynd var tekin af þessu fallega handverki Mundu.
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.