Guðsþjónusta 13. febrúar kl.11:00 í Kópavogskirkju

Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar í Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur.

Viðmiðunargjaldskrá Prestafélags Íslands fyrir prestsverk

Þann 2. febrúar, 2022 var samþykkt af stjórn Prestafélags Íslands viðmiðunargjaldskrá félagsins.

Hún er eftirfarandi:

  1. 1) Skírn,ekki innheimt fyrir skírn í guðsþjónustu.
    2) Skírn á dagvinnutíma prests 0.7 einingar 7.418 kr.
    3) Skírn utan dagvinnutíma prests 1,4 einingar 14.834 kr.
  2. Fermingarfræðsla 2,0 ein. 21.194 kr.
  3. 1) Hjónavígsla á dagvinnutíma prests 1.3 einingar 13.776 kr.

    2) Hjónavígsla utan dagvinnutíma 2 einingar 21.194 kr. 3)

    Æfing vegna hjónavígslu utan dagvinnutíma 1 eining 10.597 kr.

  4. 1) Kistulagning á dagvinnutíma 0.8 ein. kr. 8.478 kr.

    2) Kistulagning utan dagvinnutíma 1.5 eining 15.895 kr.

  5. 1) Útför á dagvinnutíma prests 3 einingar. kr. 31.791.

    2) Útför utan dagvinnutíma 3.6 einingar 38.149 kr.f.
    Jarðsetning duftkers eða kistu, sem ekki er í beinu framhaldi af útför 1.4 eining
 14.834 kr.

Barnastarf fyrir 1-3 bekk á mánudögum

Start fyrir börn í 1-3 bekk er á mánudögum í safnaðarheimilinu Borgum frá kl. 15:30-16:30.  Umsjón með starfinu hafa guðfræðingarnir: Laufey Brá Jónsdóttir og Hjördís Perla Rafngsdóttir

Mál dagsins 8. febrúar n.k.

Mál dagins verður næst þriðjudaginn 8. febrúar kl. 14:30-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum og hefst með samsöng undir stjórn Gríms Sigurðssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 flytur Guðrún Ása Grímsdóttir, prófessor emeritus og sérfræðingur á Árnastofnun erindi um Sturlungu. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því og stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 6. febrúar kl.11:00

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 6. febrúar n.k. kl.11:00 með þátttöku sunnudagaskólans. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir og Hjördís Perla Rafnsdóttir leiða stundina. Börn úr Kársnesskóla syngja undir stjórn Þóru Marteinsdóttur.

Mál dagsins hefst aftur 1. febrúar kl.14:30-16:00

Mál dagsins hefst aftur 1. febrúar kl.14:30-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Stundin hefst með samsöng undir stjórn Gríms Sigurðssonar og Lenku Mátéová.  Flutt verður 20 mínútna erindi.  Kaffi er drukkið kl. 15:30 og stundinni lýkur kl.16:00 með stuttri bæn og blessun.

Vetrarhátíð og Kópavogskirkja 4-5 febrúar n.k.

Sirra Sigrún Sigurðardóttir gerir ljósaverk fyrir Kópavogskirkju

Nýju verki eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur myndlistarmann verður varpað á Kópavogskirkju fyrstu helgina í febrúar, föstudags- og laugardagskvöldið 4. – 5. febrúar.

Verk Sirru, sem er gert sérstaklega fyrir form Kópavogskirkju og í samtali við list Gerðar Helgadóttur, er gert að beiðni Kópavogsbæjar í tilefni Vetrarhátíðar. Hátíðin verður að þessu sinni lágstemmd og munu ljósaverk og listaverk utandyra vera í forgrunni.

Sækir innblástur til verka Gerðar Helgadóttur

Verk Sirru eru kosmísk í eðli sínu og tengjast vangaveltum um stöðu okkar í gangverki náttúru, eðlisfræði og þeirra afla sem halda heiminum gangandi. Nýtt verk Sirru sækir innblástur í verk Gerðar Helgadóttur; vitnað er til lita og forma í gler- og mósaíkverkum Gerðar, en jafnframt til áhuga hennar á gangi himintungla, dulspeki og tengingu mannsins við alheiminn.

Vakið verðskuldaða athygli fyrir list sína

Sirra Sigrún lauk BA prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og útskrifaðist með meistaragráðu frá School of Visual Arts í New York 2013. Hún hefur haldið einkasýningar í Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Listasafni Árnesinga, Hafnarborg og Kling & Bang og tekið þátt í fjölda sýninga víða um heim, . þar á meðal í Kína, Finnlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi.

Sirra hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir list sína og m.a. fengið styrki og viðurkenningar úr listasjóðum Svavars Guðnasonar, Guðmundu Andrésdóttur og verðlaun Guðmundu S. Kristinsdóttur. Sirra  Sigrún var listamaður Kærleikskúlunnar 2021.

Verkinu verður varpað á Kópavogskirkju frá 18 – 23 föstudags- og laugardagskvöldið 4. og 5. febrúar.

Streymi frá helgistund og sunnudagaskóla verður sunnudaginn 30. janúar

Streymt verður á Facebókarsíðu Kópavogskirkju frá helgistund og sunnudagaskóla sunnudaginn 30. janúar

Streymi 16. janúar n.k.

Vegna sóttvarnarreglna og tilmæla frá biskupi Íslands verður ekki guðsþjónusta eða sunnudagaskóli í Kársnesprestakalli næstkomandi sunnudag 16. janúar. Aftur á móti verður helgistund í umsjón sr. Sigurðar Arnarsonar streymt á „facebókarsiðu) Kópavogskirkju. Félagar úr Kór Kópavogskirkju munu syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.

Helgihald um áramót

Helgihald um áramót:
 
Á gamlársdegi 31. desember verður streymt á facebook síðu kirkjunnar hátíðarhelgistund, sem sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir.
 
Nýjársdagur 1. janúar verður streymt á sama hátt hátíðarhelgistundm, sem sr. Sigurður Arnarson leiðir.
 
Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors.
 
 
Gleðilegt nýtt ár.