Fræðslukvöld í Kópavogskirkju á þriðjudagskvöldum
Fyrsta fræðslukvöldið var 5. apríl síðastliðinn, þar sem fjallað var um Guðfræði í nútímatónilst: Nick Cave og Bob Dylan. Áhugaverð og áheyrileg erindi fluttu þeir Kristján Ágúst Kjartansson og Henning Emil Magnússon. Næsta fræðslukvöld verður þriðjudaginn 12. apríl n.k. kl. 20:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Þá mun dr. Sigurður Pálsson fjalla um „Milvægi trúaruppfræðslu barna- og unglinga“. Allir hjartanlega velkomnir.