Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Messa & sunnudagaskóli 24/11/24nóvember 21, 2024 - 12:03 e.h.
- „Dag í senn“ – messa 17. nóvember 2024nóvember 12, 2024 - 3:33 e.h.
- Barna og fjölskylduguðsþjónusta 10/11/24nóvember 6, 2024 - 11:04 f.h.
- Guðsþjónusta 3. nóvember kl. 11:00 í Kópavogskirkjuoktóber 30, 2024 - 9:50 f.h.
- Messa & sunnudagaskóli 27/10/24október 24, 2024 - 12:42 e.h.
Fermingaræfingar og fermingar vorið 2021
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonFermingardagar 2021 verða sem hér segir:
Sunnudag 21. mars, 2021, kl. 11:00
Pálmasunnudag 28. mars, 2021 kl.11:00
Skírdagur 1. apríl 2021, kl. 11:00
Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni.
Æfingar fyrir fermingarmessur eru í Kópavogskirkju, vorið 2021:
Sunnudag 21. mars, 2021, kl. 11:00
Æfingar eru 18 og 19. mars kl. 16:15-17:15
Pálmasunnudagur 28. apríl, 2021 kl. 11:00.
Æfingar eru 25 og 26. mars kl. 16:15-17:15
Skírdagur 1. apríl 2020, kl. 11:00.
Æfingar eru 29 og 30. mars kl. 10:00-11:00.
Barna- og æskulýðsguðsþjónusta sunnudaginn 7. mars kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonBarna- og æskulýðsguðsþjónusta verður sunnudaginn 7. mars kl.11:00 í Kópavogskirkju á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir stundina ásamt Hjördísi Perlu Rafnsdóttur, guðfræðingi sem flytur hugvekju. Félagar úr Skólakór Kársnes syngja undir stjórn Áflheiðar Björgvinsdóttur. Fermingarbörn vetrarins taka þátt í helgihaldinu ásamt sunnudagaskólanum.
Sunnudagaskóli 28. febrúar kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSunnudagaskóli verður í safnaðarheimilinu Borgum, sunnudaginn 28. febrúar n.k. kl.11:00. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta 28. febrúar kl. 11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður sunnudaginn 28. febrúar n.k. kl.11:00 í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Máteóva.
Helgistund 14. febrúar kl.11:00 í Kópavogskirkju
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonHelgistund verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 14. febrúar n.k. kl.11:00 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar, héraðstprests.
Vetrarhátíð Kópavogskirkja
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonVetrarhátíð Kópavogskirkja + Gerður Helgadóttir
Í tilefni Vetrarhátíðar verður Kópavogskirkja og steindir gluggar Gerðar Helgadóttur baðaðir í ljósi og litum, föstudaginn 6. febrúar kl. 18-24.
Inni í Kópavogskirkju verður sýningin Alsjáandi þar sem má sjá tillögur Gerðar Helgadóttur að altaristöflu í Kópavogskirkju. Tillögurnar vann Gerður árið 1971 en samkomulag náðist ekki um innihald þeirra og urðu þær því ekki að veruleika. Á sýningunni gefst gestum færi á að skoða skissurnar í því samhengi sem þær voru hugsaðar, inni í kirkjunni ásamt steindum gluggum Gerðar Helgadóttur.
Sýningarstjóri: Anna Karen Skúladóttir
Kópavogskirkja verður opin gestum á föstudag, 5. febrúar kl. 17-21 og um helgina, 6.-7. febrúar, kl. 12-16. Laugardaginn 6. febrúar verður leiðsögn um sýninguna með Önnu Karen Skúladóttur, Hallgerði Hallgrímsdóttur og Sigurði Arnarsyni, sóknarpresti Kópavogskirkju.
Winter Lights Festival Kópavogur Church + Gerður Helgadóttir
Kopavogur Church and Gerður Helgadóttir’s stained glass windows will be bathed in light and colours on Friday, 6 – 12 p.m. Inside the church, Gerður Helgadóttir’s proposals for an altarpiece will be exhibited. Gerður worked on the proposals in 1971, but no agreement was reached on their content and they did not materialize. In the exhibition, visitors are given the opportunity to view the sketches in the context in which they were conceived, inside the church together with Gerður Helgadóttir’s stained glass windows.
Kópavogur Church will be open on Friday, 5. February, 5-9 p.m. and Saturday and Sunday, 6. – 7. February, 12 – 4 p.m. A guided tour of the exhibition will be given on Saturday at 12pm by curator Anna Karen Skúladóttir, Hallgerður Hallgrímsdóttir and Rev. Sigurður Arnarson, pastor of Kópavogskirkja.
Starfið í Kópavogskirkju 1. febrúar -8. febrúar, 2021
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonStarfið 25. janúar -31. janúar, 2021
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonNú er hafið safnaðarstarf að hluta í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur.
Mánudagar 15:40-16:20 – Vetrarfermingarfræðsla
Fimmtudagar 15:30-16:30 Starf fyrir 7-9 ára
Fimmtudagar 20:00-21:30 Æskulýðsfundir fyrir 8. bekk
Sunnudagar kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum er sunnudagaskóli
Sunnudagar kl.11:00 í Kópavogskirkju eru helgistundir.
Helgistundir hefjast aftur í Kópavogskirkju eftir hlé vegna Covid19
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonSunnudaginn 24. janúar kl.11:00 verður helgistund í umsjón sr. Sigurðar Arnarson og Önnu Maríu Hákonardóttur, messuþjóns. Lenka Mátéová, kantor annast tónlistarflutning. Að sjálfsögðu er sóttvarnarreglum fylgt.
Sunnudagaskólinn hefst aftur sunnudaginn 24. janúar n.k. kl.11:00
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonSunnudagaskólinn hefst aftur sunnudaginn 24. janúar n.k. kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum og að sjálfsögðu er farið eftir reglum varðandi sóttvarnir. Allir hjartanlega velkomnir.