Vegna ferminga í Kópavogskirkju, vorið 2022
Þau sem ætla að fermast vorið 2022 í Kópavogskirkju eru beðin um senda tölvupóst (kopavogskirkja@kirkjan.is) og biðja um skráningarblöð vegna ferminganna fyrir 25. maí, 2021. Síðsumarnámskeið verður 23., 24. og 25. ágúst, 2021 frá kl. 9:00 – 13:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Vetrarfermingarfræðsla (fyrir þau sem ekki eru á síðsumarsnámskeiðinu) verður vikulega næsta vetur frá og með 6. september, 2021 kl:16:15 – 17:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Tvær kynningarguðsþjónustur og upplýsingafundir verða í: haust (nánar tilkynnt síðar) og 30. janúar 2022 og upplýsingafundir með foreldrum og fermingarbörnum strax á eftir. Mikilvægt er að foreldrar og fermingarbörn komi í guðþsjónusturnar og á upplýsingafundina.Þann 29. september, 2021 verður farið í dags fermingarfræðsluferð í Vatnaskóg (nánar síðar). Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp) verða (hálfur dagur fyrir áramót og hálfur dagur eftir áramót, tilkynnt síðar). Aukatímar gætu orðið á laugardögum kl. 11:00 ef einhverjir komast ekki á fyrirframskipulögðum fræðslutímum. Það yrði auglýst síðar. Námsgögn (tilkynnt síðar) en fermingarbörn skulu taka skriffæri og stílabók með sér í fræðsluna. Áríðandi er að fermingarbörn sæki helgihald eins vel og unnt er og að sjálfsögðu allir velkomnir með þeim. Í safnaðarheimilnum Borgum (sjá: kopavogskirkja.is) er salur til útleigu fyrir fermingarveislur. Fermingarbörn í Kársnesókn ganga fyrir varðandi bókanir á salnum og verða þær teknar niður (kopavogskirkja@kirkjan.is) af Ástu, djákna safnaðarins eftir 25. maí, 2021 og hafa sóknarbörn Kársnessóknar viku forgang frá þeim tíma.
Fermingardagar 2022 verða sem hér segir:
- Sunnudag 3. apríl, 2022, kl. 11:00,
- Pálmasunnudag 10. apríl, 2022, kl.11:00,
- Pálmasunnudag 10. apríl, 2022, kl.13:30, og
- Skírdagur 14. apríl 2022, kl. 11:00
Fermingarbörn geta valið fermingardaga eins og undanfarin ár. Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni.
Æfingar fyrir fermingarmessur eru í Kópavogskirkju, vorið 2022:
- Sunnudag 3. apríl, 2022, kl. 11:00.
Æfingar eru 31. mars og 1. apríl kl. 16:15-17:00.
- Pálmasunnudagur 10. apríl, 2022 11:00.
Æfingar eru 7. og 8. apríl, kl. 16:15-17:00.
- Pálmasunnudagur 10. apríl, 2022 13:30.
Æfingar eru 7. og 8. apríl, kl. 17:00-17:45.
- Skírdagur 14. apríl 2022, kl. 11:00.
Æfingar eru 11. og 12. apríl kl. 10:00-11:00.
Fermingar í ágúst, 2021
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonFermt verður sunnudaginn 22. ágúst kl.11:00 í Hjallakirkju og þann 29. ágúst kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt gengt Gerðarsafni).
Æfingar fyrir fermingar eru sem hér segir:
Föstudaginn 20. ágúst kl. 16:00-17:00 í Hjallakirkju (ekki 10:00 eins og var búið að auglýsa) fyrir þau sem fermast 22. ágúst og
Föstudaginn 27. ágúst kl.16:00-17:00 í safnaðarheimilinu Borgum fyrir þau sem fermast 29. ágúst.
Fermingarbörn skulu mæta í Hjallakirkju (22. ágúst) og í safnaðarheimilið Borgir (29. ágúst) kl. 10:30.
Upplýsingar um sóttvarnir má finna á vef Heilbrigðisráðuneytisins. Allar takmarkanir ná til landsins alls og almenna reglan um fjöldatakmörkun er 200 manns. Minnum á persónubundnar sóttvarnir.Grímuskylda er innandyra þar sem ekki er unnt að tryggja 1 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Skráning þátttakenda á allar athafnir og viðburði er í gildi, og fer hún fram fyrir athöfnina í Hjallakirkju þann 22. ágúst n.k. og í anddyri safnaðarheimilisins Borga sunnudaginn 29. ágúst. n.k. Ákvæði um fjöldatakmörkun og nálægðartakmörkun taka ekki til barna sem fædd eru 2016 og síðar.
Grímuskylda á ekki við börn sem fædd eru 2006 og síðar.
Breyttir tímar vegna sumarfermingarfræðslu
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSíðssumarsfræðsla – Breyttir tímar
Síðsumarnámskeið verður föstudaginn 20. og mánudaginn 23. ágúst, 2021 frá kl. 9:00 – 15:00 í safnaðarheimilinu Borgum.
Vetrarfermingarfræðsla (fyrir þau sem ekki eru á síðsumarsnámskeiðinu) verður vikulega næsta vetur frá og með 6. september, 2021 kl:16:15 – 17:00 í safnaðarheimilinu Borgum.
Þau sem eiga eftir að skrá sig í fræðsluna eru beðin um að gera það við fyrsta tækifæri (kopavogskirkja@kirkjan.is).
Tvær kynningarguðsþjónustur og upplýsingafundir verða 3. október, 2021 og 30. janúar 2022 og upplýsingafundir með foreldrum og fermingarbörnum strax á eftir. Mikilvægt er að foreldrar og fermingarbörn komi í guðsþjónusturnar og á upplýsingafundina.
Þann 29. september, 2021 verður farið í dags fermingarfræðsluferð í Vatnaskóg.
Helgistund 15. ágúst 2021 kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonHelgistund verður í safnaðarheimili Kópavogskirkju, sunnudaginn 15. ágúst n.k. kl.11:00. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, leiðir stundina og Peter Máté, annast tónlist.
Helgistund 1. ágúst kl.11:00. Sögufélagið leiðir gögnu um umhverfi kirkjunnar. Kaffisopi á eftir
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonHelgistund verður sunnudaginn 1. ágúst n.k. kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum (úti ef veður leyfir). Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari og prédikar. Lára Bryndís Eggertsdóttir annast tónlistarflutning. Að stundinni lokinni (um kl.11:35) mun Sögufélag Kópavogs leiða göngu um nágrenni Kópavogskirkju. Að göngu lokinni verður boðið upp á kaffi og kleinur í safnaðarheimilinu Borgum.
Helgihald í kirkjum Kópavogs frá 20. júní til og með 8. ágúst, 2021
/in Fréttir/by Sigurður Arnarson„Þjónusta kirkjunnar við andlát“
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonKjalarnesprófastsdæmi hafði nýverið frumkvæðið að því að opna upplýsingarsíðuna : www.utforikirkju.is og eins upplýsingarbækling en þar má nálgast upplýsingar sem nýtast öllum þeim sem standa í þeim sporum að kveðja ástvin.
Helgistund 13. júní kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonHelgistund verður í safnaðarheimili Kópavogskirkju (Borgum), sunnudaginn 13. júní næstkomandi klukkan 11:00. Laufey Brá Jónsdóttir, guðfræðinemi flytur hugvekju og þjónar ásamt sr. Sjöfn Jóhannesdóttur. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová
Helgistund 30. maí kl.11.00 í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonHelgistund verður í safnaðarheimilinu Borgum sunnudaginn 30. maí n.k. kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors.
Hátíðarhelgistund á Hvítasunnudegi kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonHátíðarhelgistund á Hvítasunnudag 23. maí kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, þjónar fyrir altari og félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.
Vegna ferminga í Kópavogskirkju, vorið 2022
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonVegna ferminga í Kópavogskirkju, vorið 2022