Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Messa & sunnudagaskóli 24/11/24nóvember 21, 2024 - 12:03 e.h.
- „Dag í senn“ – messa 17. nóvember 2024nóvember 12, 2024 - 3:33 e.h.
- Barna og fjölskylduguðsþjónusta 10/11/24nóvember 6, 2024 - 11:04 f.h.
- Guðsþjónusta 3. nóvember kl. 11:00 í Kópavogskirkjuoktóber 30, 2024 - 9:50 f.h.
- Messa & sunnudagaskóli 27/10/24október 24, 2024 - 12:42 e.h.
Æskulýðshópar fyrir 8 og 9 bekk
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonTveir æskulýðshópar verða starfræktir í vetur í safnaðarheimilinu Borgum. Fundirnar verða á fimmtudögum frá og með 10. september. Fyrir 8 bekk frá kl. 18:30-20:00 og 9. bekk frá kl. 20:00-21:30.
Start fyrir 6-9 ára hefst fimmtudaginn 10. september
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonStarf fyrir 6-9 ára hefst fimmtudaginn 10. september í safnaðarheimilinu Borgum frá kl. 15:30-16:30.
Vegna ferminga síðar í mánuðinum og æskulýðsstarf fyrir 9. bekk
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonFermingarfræðsla verður næstkomandi laugardag, 12. september frá kl. 10:30-12:00 í safnaðarheimilinu Borgum fyrir þau, sem fermast 20 og 27. september n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Á sama tíma og stað munu fermingarbörnin máta aftur fermingarkyrtla. Námsefni síðasta vetrar verður rifjað upp. Þeim, sem eiga eftir að skila ritningarorðum verður sendur tölvupóstur fljótlega.
Fermingaræfingar verða:
Fyrir þau, sem fermast 20. september kl. 11:00 verður æft í Kópavogskirkju fimmtudaginn 17. september kl. 16:15-17:00 og föstudaginn 18. september kl. 16:15-17:00.
Fyrir þau, sem fermast 27. september kl. 11:00 verður æft í Kópavogskirkju fimmtudaginn 24. september kl. 16:15:-17:00 og föstudaginn 25. September kl. 16:15-17:00.
Nauðsynlegt er að allir mæti æfingarnar.
Fermingarbörnin skulu mæta 30 mínútum fyrir fermingarathafnirnar. Vakin er athygli á því að steint gler Gerðar Helgadóttur í kirkjunni (norður og austurhlið) er nú í viðgerð í Þýskalandi og einnig er verið að gera við ytra byrði glugganna á þessum hliðum. Þessum viðgerðum átti að vera lokið fyrir fermingarnar nú en þær töfðust vegna Covid 19.
Í vetur verða æskulýðsfundir fyrir unglinga í 9. bekk á fimmtudagskvöldum frá kl. 20:00-21:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Æskulýðsfundir fyrir unglinga í 8. bekk verða einnig á fimmtudagskvöldum en frá kl. 18:30-20:00 einnig í safnaðarheimilinu.
Unglingastarf – 9. bekkur – Dagskrá
10. sept: Hópleikir
17. sept: Orrusta
24. sept: Útileikir
1. okt: Pac-man
8. okt: Gaga-ball
15. okt: Brjóstsykursgerð
22. okt: Kemur í ljós
29. okt: Jól í skókassa
5. nov: Hjálparstarf kirkjunnar og Pizza
12. nov: Spikeball
19. nov: Bíó
26. nov: Kemur í ljós
3. des: Sleðar
10. des: Jólafundur
Biblíulestrar, haustið 2020 – Orð og list, haustið 2020
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonBiblíulestrar haust 2020
Orð og list haust 2020
Guðfræði og myndlist. Langar þig að fræðast um það inntak sem kristin trú ljær listinni.
Dr. dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur fjallar um Biblíulegan bakgrunn myndlistar, þá guðfræði sem myndlist getur birt og almennt um vægi hennar fyrir kristna trú.
Farið verður í nokkrar lykilspurningar: Hvaða vægi hefur myndabannið í boðorðunum tíu? Hvaða guðfræði er á bak við það? Hafnar það almennt myndum eða bara alræði ákveðinna hugmynda?
Fjallað verður sérstaklega um þá Biblíutexta sem helst hafa mótað mat kristninnar á vægi lista bæði í sögu og samtíma.
Hér er á ferðinni spennandi námskeið þar sem leitast er við að svara spurningum þeirra sem vilja vita meira.
Um kennarann: Dr. dr. Sigurjón Árni er einn fremsti fræðimaður Íslendinga í guðfræði. Hann starfar sem héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og leiðir þar predikunarsamfélag presta.
Hann hefur kennt guðfræði bæði við Háskóla Íslands og einnig við Háskólann í Kiel í Þýskalandi. Sigurjón hefur einnig gefið út fjölda bóka um guðfræði og er án vafa afkastamesti guðfræðihöfundur landsins.
Á námskeiðinu verður boðið upp á fyrirlestur og síðan verða umræður um efnið yfir kaffibolla þar sem þátttakendur eru hvattir til að leggja til umræðunnar.
Staður og stund. Fyrirlestrarnir fara fram í Breiðholtskirkju og eru á fimmtudagskvöldum klukkan 20-22. Alls er um 10 skipti að ræða. 24. september til 26. nóvember.
Hægt er að sækja stök fræðslukvöld. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Skráning á námskeiðið er í gegnum netfangið ritari@eystra.is eða í síma 567-4810
Dagskrá fyrir sunnudagskólann, 6-9 ára starf og æskulýðsfélögin, haustið 2020
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonSunnudagaskóli
20 sept: Blöðruþema
18 okt: Húba Húba dans
25 okt: Leikfangaþema
Mál dagsins
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMál dagsins hefur aftur göngu sína þriðjudaginn 8. septtember n.k. frá kl. 14:30-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Fyrst er sungið í hálftíma og síðan flytur sr. Gunnlaugur Stefánsson fyrrum sóknarprestur í Heydölum efni að eigin vali. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því og stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta, sunnudagaskólinn hefst eftir frí
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 6. september n.k. kl. 11:00. Þá hefst sunnudagaskólinn aftur eftir frí. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir stundina ásamt sunnudagaskólakennurum. Börn úr Kársnesskóla syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Mál dagsins
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMál dagsins hefur göngu sína aftur þriðjudaginn 8. september n.k. kl.14:30-16:00
Helgistund 30. ágúst kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonHelgistund verður sunnudaginn 30. ágúst kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Hjördís Perla Rafnsdóttir, guðfræðinemi flytur hugleiðingu. Sr. Sigurður Arnarson leiðir stundina. Félagar úr Kór Kópavogskirkju leiða stundina undir stjórn Peter Maté.
Fundi 23. ágúst vegna ferminga 2021 frestað
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonFundi sem átti að vera eftir helgistund 23. ágúst n.k. kl. 11:00 vegna ferminga 2021 er frestað vegna Covid.