Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Messa & sunnudagaskóli 24/11/24nóvember 21, 2024 - 12:03 e.h.
- „Dag í senn“ – messa 17. nóvember 2024nóvember 12, 2024 - 3:33 e.h.
- Barna og fjölskylduguðsþjónusta 10/11/24nóvember 6, 2024 - 11:04 f.h.
- Guðsþjónusta 3. nóvember kl. 11:00 í Kópavogskirkjuoktóber 30, 2024 - 9:50 f.h.
- Messa & sunnudagaskóli 27/10/24október 24, 2024 - 12:42 e.h.
Mál dagsins
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins hefur aftur göngu sína eftir sumarfrí þriðjudaginn 5. september n.k. Starfið hefst kl.14:30 í safnaðarheimilinu Borgum með samsöng undir stjórn Lenku Matéová og Friðriks Kristinssonar. Kl.15:10 segir Unnur Þóra Jökulsdóttir frá nýlegri bók sinni um Mývatn. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því. Stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Vorvísur að hausti og Kór Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonÞann 13. september n.k. kl.20:00 ætlar Kór Kópavogskirkju að fagna liðnu sumri og syngja inn haustið með vorvísum og fleiri fallegum lögum. Tónleikagestum veður boðið upp á kaffi og kökur undir söng kórsins.
Kór Kópavogskirkju hefur starfað undir stjórn Lenku Matéová frá hausti 2008. Aðal tilgangur kórsins er að syngja við helgihald Kópavogskirkju en auk þess heldur kórinn tvenna tónleika á ári. Meðal stórra verkefna kórsins á undanförnum árum eru: Messa í dúr eftir Dvorak ásamt Kór Hjallakrikju, Stabat Mater eftir Pergolesi og Messa í g dúr eftir Schubert.
Einkunnarorð kórsins eru gleði og gæði þar sem allir fá að njóta sín. Meðal kórfélaga er að finna bæði menntaða söngvara og áhugafólk. Meðleikari á tónleikunum verður Peter Maté.
Sunnudagaskólinn
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSunnudagaskólinn hefur aftur starfsemi sína sunnudaginn 10. september nk. kl.11:00 í barna- og fjölskylduguðsþjónustu í Kópavogskirkju. Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta 3. september kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 3. september n.k. kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Guðsþjónusta 27. ágúst kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 27. ágúst n.k. kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová.
Tónleikar 20. ágúst kl. 21:00 í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMessa 20. ágúst kl.20:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMessa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 20. ágúst n.k. kl. 20:00. Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni þjóna. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Þór Arnarson og félagar leika á orgel og fleiri hljóðfær. Til messunar eru fermingarbörn vestursins boðuð ásamt foreldrum og forráðafólki.
Guðsþjónusta 6. ágúst kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður sunnudaginn 6. ágúst kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Sr. Sigfús Kristjánsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Guðný Einarsdóttir leikur á orgel.
Helgihald í sumar
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonHelgihald sumarið 2017 í Kópavogi
Þjóðkirkjusöfnuðurnir í Kópavogi verða eins og undanfarin ár í samstarfi um helgihald frá og með 11. júní til og með 13. ágúst í sumar. Í júní verða guðsþjónustur í Hjallakirkju, í júlí í Digraneskirkju og í ágúst í Kópavogskirkju og hefjast þær kl. 11:00.
Sunnudagaskóli verður á hverjum sunnudegi kl.11:00 í Lindakirkju ef frá er skilin verslunarmannahelgin.
Hjallakirkja 11. júní kl. 11:00. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson og sr. Sigurður Arnarson
Hjallakirkja 18. júní kl.11:00 Sr. Guðni Már Harðarson
Hjallakirkja 25. júní kl. sr. Gunnar Sigurjónsson.
Digraneskirkja 2. júlí kl.11:00. Sr. Karen Lind Ólafsdóttir.
Digraneskirkja 9. júlí kl. 11:00. Sr. Gunnar Sigurjónsson
Digraneskirkja 16. júlí kl. 11:00. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
Digraneskirkja 23. júlí kl. 11:00. Sr. Magnús B. Björnsson
Digraneskirkja 30. júlí kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson
Kópavogskirkja 6. ágúst kl. 11:00. Sr. Sigfjús Kristjánsson
Kópavogskirkja 13. ágúst kl. 11:00. Sr. Karen Lind Ólafsdóttir.
„Þar sem ég má næðis njóta“
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonAnnan í hvítasunnu, mánudaginn 5. júní kl. 18:00 verður opnuð listsýning Guðbjargar Lindar Jónsdóttur í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum (skáhalt gengt Gerðarsafni). Sýningin samanstendur af úrvali verka úr eigu listamannsins. Kór unglinga frá Lúxemborg mun syngja nokkur lög í tilefni opnunarinnar. Viðfangsefni Guðbjargar Lindar hafa löngum tengst vatni, fyrst fossum og síðar sjávarfletinu þar sem eyjar og bátar fljóta á yfirborðinu eða fjallshlíðar og eyrar teyja sig út á hafflötinn. Í verkum Guðbjargar Lindar segir af ferðalagi á vit veraldar þar sem skyna má hið upphafna í sjálfum einfaldleikanum. Sýningin er opin virka daga á milli 09:00-13:00 (lokað í júlí) og eftir samkomulagi (kopavogskirkja@kirkjan.is) www. gudbjorglind.is
Allir hjartanlega velkomnir.