Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Sameiginleg fermingarfræðsla 17. nóvember kl. 19:30
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonFermingarfræðsla fyrir allan hópinn verður fimmtudaginn 17. nóvmeber n.k. kl. 19:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Sýnd verður kvikmyndin Málmhaus eftir Ragnar Bragason. Eftir sýningu mun Ragnar fjalla um myndina og viðfangaefni hennar. Sr. Sigurður mun ræða um sorg og sorgarviðbrögð vegna andláta. Foreldrar fermingarbarna eru hvött til að koma til fræðslunnar ásamt sínum unglingum.
Guðsþjónusta 20. nóvember kl. 11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 20. nóvember kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagssmiðja fyrir börn á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonNæsta Mál dagsins verður þriðjudaginn 15. nóvember n.k. kl. 14:30 og hefst með samsöng undir stjórn; Lenku Mátéová og Friðriks Karlssonar. Um kl. 15:10 flytur Kristján Schram erindi um hvernig auglýsingar verða til. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Fyrirbænastundir á þriðjudögum kl. 12:10 í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 13. nóvember n.k. kl. 11:00. Skólakór Kárnes syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins 8. nóvember
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins 8. nóvember hefst að venju kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar. Klukkan 15:10-15:30 heldur Gestur Jónsson, hæstarréttarlögmaður erindi. Kl.15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn. Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudagasmiðja
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta (allra heilagra messa) 6. nóvember kl. 11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSunnudaginn 6. nóvember n.k. verður guðsþjónusta á “Allra heilagra messu” í Kópavogskirkju kl. 11:00. Þá er þeirra sérstaklega minnst, sem eru látin. Beðið verður með nafni fyrir þeim, sem sóknarprestur Kópavogskirkju hefur jarðsungið á tímabilinu 20. október 2015- til 20. október 2016 og aðstandendum þeirra er boðið sérstaklega til guðsþjónustunnar. Sigurður Arnarson, sóknarprestur mun prédika og Ásta Ágústsdóttir, djákni mun einnig þjóna fyrir altari.Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.Sunnudagskólinn með listasmiðjuívafi hefst kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.Flutt verður tónlist í kirkjunni frá kl. 10:30 og þá gefst kostur að tendra á bænaljósi við altari. Eftir guðsþjónustu verður boðið upp á hressingu í safnaðarheimilinu Borgum. Ásta, djákni mun þá fjalla um sorg og sorgarviðbrögð. Ef tækifæri er til eru þau sem geta beðin um að koma með eitthvað á hádegisverðarhlaðborð í safnaðarheimilinu (opið verður þar frá kl.10:30).Allir eru hjartanlega velkomnir.
Heimsókn frá Hjálparstarfi kirkjunnar á æskulýðsfundi
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonÞau Ahmed og Million, sem starfa hjá Lútherska heimssambandinu í Eþjópíu komu í heimsókn á æskulýðsfund nýverið. Sögðu þau frá vatnsbrunnaverkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar í Eþjópíu og fræddu okkur um land og þjóð. Meðfylgjandi myndir voru teknar á fundinum og forsíðumyndin af æskulýðsleiðtogunum að læra eþjópískan dans.
Bæn vegna stríðsátaka í Aleppo og beiðni um að kirkjuklukkum verði hringt
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonNýverði barst bréf frá biskupi Íslands til presta og formanna sóknarnefnda. Í bréfinu segir meðal annars: Eins og fréttir herma er saklaust fólk limlest eða lætur lífið í stríðsátökunum í Aleppo í Sýrlandi þessa dagana. Ráðamenn virðast ekki geta fundið lausn til friðar og uppbyggingar. Hugmynd finnska prestsins Teemu Laajasalo í Kallio sókn í lútersku finnsku kirkjunni hefur orðið að veruleika. Honum sveið ástandið eins og okkur öllum og ákvað að klukkum í hans kirkju skyldi hringt daglega kl. 17 frá 12. til 24. október, en 24. október er dagur Sameinuðu þjóðanna.Þessi hugmynd hefur breiðst út og á vefnum http://bellsforaleppo.org/ má sjá að kirkjurnar í Svíþjóð, Bretlandi og víða í Evrópu hafa gert slíkt hið sama. Tilgangurinn er að sýna fólkinu í Aleppo, lífs og liðnu virðingu og samkennd og vekja athygli á ástandinu.Lúterska heimssambandið, sem Þjóðkirkjan er aðili að, vekur athygli á framtakinu og hvetur fleiri kirkjur til að taka þátt. Það getur ekkert réttlætt þjáningar barna og óbreyttra borgara í Aleppo. Biskup Íslands hvetur presta og sóknarnefndir til að hringja klukkum kirkna frá mánudeginum 24. október kl. 17 í þrjár mínútur og daglega eftir því sem við verður komið til og með 31.október, sem er siðbótardagurinn.Um leið er til þess mælst að beðið verði fyrir fólki og ástandi í Aleppo og endir verði bundinn á þann hrylling er þar á sér stað.