Guðsþjónusta á nokkrum tungumálum

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju n.k. sunnudag 15. febrúar kl. 11:00. Prestur innflytjenda sr. Toshiki Toma mun prédika og sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari.

Beðið verður á nokkrum mismunandi tungumálum og ritningarlestrar lesnir á nokkrum tungumálum. Kór Kópavogskirkju mun syngja undir stjórn Lenku Mátéová.

Sunnudagskólinn hefst að venju í kirkjunni kl. 11:00 en flytur síðan í safnaðarheimilið Borgir.

Mál dagsins 10. febrúar n.k.

Mál dagsins hefst að venju kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar. Um kl. 15:10 flytur Pétur Eggertz leikari erindi um leikssýningu um Jón Steingrímsson. Um kl. 15:30 er drukkið kaffi og með því.  Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.

Allir hjartanlega velkomnir.

Fermingarfræðsla í Kársnessókn, janúar-apríl 2015

Vetrarfermingarfræðsluhópur: Mánudagar, kl. 15:10-15:50 til 9. mars , nema 26. janúar, 23. febrúar

 Sameiginlega fermingarfræðsla:Mánudaginn 26. janúar:      kl. 10:45-11:25 – 8Ö, kl.11:30-12:10- 8Æ  og kl.12:15-12:55- 8Þ ( safnaðarheimilið Borgir)

Mátun á fermignarkirtlum í kirkju að loknum tíma

Þriðjudaginn 17. febrúar:    kl.20:00-21:30       Allur hópurinn og foreldrar velkomnir (safnaðarheimilið Borgir).  Allir skili inn ritningartexta sínum fyrir 1. Mars með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is

Fermingarfræðslupróf:

Mánudaginn 16. mars, kl. 15:10-8Þ

Mánudaginn 16. mars. kl. 15:40 -8Ö

Mánudaginn 16. Mars. kl. 16:10-8Æ

Allir skili “Kirkjulyklinum” útfylltum.

Vinsamlega tilkynnið forföll í fermingarfræðslutíma.

Ef breyta þarf um fermingadag, þá er það tilkynnt skriflega (t.d. tölvupósti).

Fermingaræfingar verða eftirtalda daga (nauðsynlegt að allir séu á æfingum):

Þau sem fermast 22. mars æfa:   fimmtudaginn 19. mars, kl. 16:00-17:00 og föstudaginn 20. mars, kl. 16:00-17:00

 Þau sem fermast 29. mars æfa:   fimmtudaginn 26. mars, kl. 16:00-17:00 og föstudaginn 27. mars, kl. 16:00-17:00

Þau sem fermast 2. apríl æfa:     mánudaginn 30. mars, kl. 10:30-11:30 og þriðjudaginn 31. mars, kl. 10:30-11:30

Þann 22. mars, 29. mars og 2. apríl er fermt kl. 11:00

Æskulýðsfundir fyrir 8. bekk hefjast þriðjudagskvöldið 20. janúar n.k. kl. 20:00-21:30 og verða á þriðjudagskvöldum til 10. mars.

Mál dagsins 20. janúar, 2015

Mál dagsins verður að venju þriðjudaginn 20. janúar n.k. kl. 14:30-16:00. Stundin hefst að venju með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 mun Sólveig Einarsdóttir, fyrrum menntaskólakennari flytja erindi. Um klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinn lýkur kl. 16:00 með stuttri bæn.

Messa 18. janúar

Messa verður í Kópavogskirkju 18. janúar n.k. kl. 11:00. Til messunar eru sérstaklega boðuð foreldrar og fermingarbörn vetrarins. Nokkur fermingarbörn munu taka þátt í messunni.

Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni en flyst eftir messuupphaf í safnaðarheimilið Borgir.

Eftir messu verður fundur í safnaðarheimilinu Borgum með foreldrum og fermingarbörnum þar sem fermingarstarfið verður rætt og fermingarnar.

Foreldramorgnar

Foreldramorgnar í safnaðarheimilinu Borgum hefjast aftur eftir jóla- og áramótafrí fimmtudaginn 15. janúar n.k. kl.10:00-12:00.

Starf fyrir 1.-4. bekk

Starfið fyrir 1.-2. bekk og 3.-4. bekk hefst aftur eftir jóla- og áramótafrí miðvikudaginn 14. janúar n.k. í safnaðarheimilinu Borgum. Starfið fyrir 3.-4. bekk er frá 14:00-15:00 og starfið fyrir 1.-2. bekk er frá kl. 15:30-16:30.

Allir hjartanlega velkomnir.

Vetrarfermingarfræðsla

Vetrarfermingarfræðslan hefst aftur eftir jóla- og áramótafrí mánudaginn 12. janúar n.k. kl. 15:10 í safnaðarheimilinu Borgum.

Mál dagsins

Næsta “Mál dagsins” verður þriðjudaginn 13. janúar n.k. og hefst kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 mun Eyjólfur Eyjólfsson, söngvari fjalla um íslenska langspilið.  Kaffi verður drukkið kl. 15:30 og stundinni lýkur með stuttri helgisstund kl. 16:00.

Allir hjartanlega velkomnir.