Guðsþjónusta á Uppstigningardegi 25. maí. Dr. Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar
Guðsþjónusta verður kl. 14:00 á Uppsigingardegi, degi aldraðra í Þjóðkirkjunni 25. maí í Kópavogskirkju. Dr. Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar. Sr. Sigurður Arnarson og Ásta Ágústsdóttir, djákni þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Eftir guðsþjónustuna býður sóknarnefnd Kópavogskirkju viðstöddum að þiggja veitingar í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Í kaffinu mun Kór Kópavogskirkju syngja nokkur lög. Rútuferð verður fyrir guðsþjónustu frá hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Allir hjartnalega velkomnir.