Líf í trú – 7 skipta námskeið í Kópavogskirkju

Nú 5. mars byrjar námskeið á vegum Kópavogskirkju. Námskeiðið er fyrir þau sem vilja endurnýja samband sitt við kristna trú. Í gegnum bæn, biblíulestur, fræðslu  og helgistundir kynnumst við mikilvægum hugtökum og leyndardómum kristinnar trúar og tengjum við daglegt líf. Í lok námskeiðsins býðst þátttakendum að staðfesta skírnarheit sitt ásamt öðrum í guðsþjónustu.

Hvenær: Miðvikudagar (5.mars, 12. mars, 19. mars, 2. apríl, 9. apríl og 16. apríl.) Og loks laugardaginn 19. apríl kl. 22.00
-Yngri hópur (14 ára og eldri) kl. 19.30
-Eldri hópur (amk 23 ára) kl. 20.45
Staðsetning: Kapellan í safnaðarheimili Kópavogskirkju
Verð: Námskeiðið er að kostnaðarlausu en takmörkuð sæti
Umsjón: Grétar Halldór Gunnarsson, prestur við Kópavogskirkju
Skráning: Smella hér & fylla út