Mál dagsins
Þriðjudaginn 21. febrúar n.k. verður Mál dagsins í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Starfið hefst kl. 14:30 með hópsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 flytur sr. Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir að sjálfsögðu velkomnir.