Mál dagsins
Mál dagsins hefur aftur göngu sína eftir sumarfrí þriðjudaginn 5. september n.k. Starfið hefst kl.14:30 í safnaðarheimilinu Borgum með samsöng undir stjórn Lenku Matéová og Friðriks Kristinssonar. Kl.15:10 segir Unnur Þóra Jökulsdóttir frá nýlegri bók sinni um Mývatn. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því. Stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.