Mál dagsins 24. október
Mál dagins þann 24. október n.k. hefst að venju kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 segir Sigurður Ólafur Sigurðsson, ljósmyndari frá störfum sínum við að mynda björgunarfólk að störfum. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.