Málþing 11. apríl: Upprisan í sálmum og predikun Lúthers
Laugardaginn 11. apríl kl. 13:30-16:00 verður haldið málþing í Neskirkju, undir yfirskriftinni: Upprisan í sálmum og prédikun Lúthers.
Málþingið er einn af mörgum viðburðum sem nefnd um fimm alda minningu siðbótarinnar stendur fyrir í tilefni af því að árið 2017 verða liðin 500 ár frá því að Marteinn Lúther hengdi greinarnar 95 á dyr Hallarkirkjunnar í Wittenberg. Sá atburður er talinn marka upphaf siðbótarinnar.
Á málþinginu verða flutt eftirtalin erindi:
- Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson: „Sáð er forgengilegu, en upp rís óforgengilegt“ – Um dauða og upprisu í guðfræði Lúthers.
- Dr. Einar Sigurbjörnsson: „Á hólm við dauðann Guðs son gekk“ – Um páskasálma Lúthers.
- Dr. Margrét Eggertsdóttir: Hveitikorn þekktu þitt. Upprisan í verkum Hallgríms Péturssonar.
Auk þess mun Margrét Bóasdóttir leiða söng þar sem sálmar Lúthers verða kynntir. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup, stýrir umræðum.
Boðið verður upp á kaffi og er málþingið öllum opið.