Föstudaginn 6. nóvember færðu börn Steinars Steinssonar og Guðbjargar Jónsdóttur 200 þúsund krónur í minningu þeirra með ósk um að féið renni til viðgerðar á listaverki Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju.
Steinar og Guðbjörg bjuggu í Kópavogi frá árinu 1954, lengstum í Holtagerði. Þau voru í hópi þeirra, sem lögðu víða hönd á plóg við uppbyggingu Kópavogs meðal annars með framlögum til hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar þegar það var var reist á sínum tíma. Kópavogskirkja var í miklum metum hjá þeim enda sóknarkirkja þeirra. Fjölmargar kirkjulegar athafnir innan fjölskyldunnar hafa farið fram í kirkjunni. Gjöfinn veittu viðtöku fyrir hönd Kópavogskirkju, prestar og djákni kirkjunnar.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tækifæri.
