Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 18. september n.k.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 18. september kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson og Ásta Ágústsdóttir, leiða stundina. Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Hljómsveit með Bjarma Hreinssyni og fleirum leikur undir. Á eftir barna- og fjölskylduguðsþjónustunni verður stuttur fundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra. Allir velkomnir.