Unglingaguðsþjónusta sunnudagskvöldið 14. október kl. 20 í Kópavogskirkju
Hjalla-, Digranes- og Kópavogskirkja standa að unglingaguðsþjónustu í Kópavogskirkju sunnudagskvöldið 14. október n.k. kl. 20:00. Unglingar úr æskulýðsstarfi Kópavogskirkju sýna „Týnda soninn“, lesa ritningarlestra og leiða bænir. Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Sr. Sigurður Arnarson flytur hugleiðingu. Allir hjartanlega velkomnir.