Vegna ferminga síðar í mánuðinum og æskulýðsstarf fyrir 9. bekk
Fermingarfræðsla verður næstkomandi laugardag, 12. september frá kl. 10:30-12:00 í safnaðarheimilinu Borgum fyrir þau, sem fermast 20 og 27. september n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Á sama tíma og stað munu fermingarbörnin máta aftur fermingarkyrtla. Námsefni síðasta vetrar verður rifjað upp. Þeim, sem eiga eftir að skila ritningarorðum verður sendur tölvupóstur fljótlega.
Fermingaræfingar verða:
Fyrir þau, sem fermast 20. september kl. 11:00 verður æft í Kópavogskirkju fimmtudaginn 17. september kl. 16:15-17:00 og föstudaginn 18. september kl. 16:15-17:00.
Fyrir þau, sem fermast 27. september kl. 11:00 verður æft í Kópavogskirkju fimmtudaginn 24. september kl. 16:15:-17:00 og föstudaginn 25. September kl. 16:15-17:00.
Nauðsynlegt er að allir mæti æfingarnar.
Fermingarbörnin skulu mæta 30 mínútum fyrir fermingarathafnirnar. Vakin er athygli á því að steint gler Gerðar Helgadóttur í kirkjunni (norður og austurhlið) er nú í viðgerð í Þýskalandi og einnig er verið að gera við ytra byrði glugganna á þessum hliðum. Þessum viðgerðum átti að vera lokið fyrir fermingarnar nú en þær töfðust vegna Covid 19.
Í vetur verða æskulýðsfundir fyrir unglinga í 9. bekk á fimmtudagskvöldum frá kl. 20:00-21:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Æskulýðsfundir fyrir unglinga í 8. bekk verða einnig á fimmtudagskvöldum en frá kl. 18:30-20:00 einnig í safnaðarheimilinu.
Unglingastarf – 9. bekkur – Dagskrá
10. sept: Hópleikir
17. sept: Orrusta
24. sept: Útileikir
1. okt: Pac-man
8. okt: Gaga-ball
15. okt: Brjóstsykursgerð
22. okt: Kemur í ljós
29. okt: Jól í skókassa
5. nov: Hjálparstarf kirkjunnar og Pizza
12. nov: Spikeball
19. nov: Bíó
26. nov: Kemur í ljós
3. des: Sleðar
10. des: Jólafundur