Visitasía vígslubiskups í Skálholti
Sunnudaginn 30. nóvember n.k. kl. 11:00 mun sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti prédika í messu Kópavogskirkju. Í för með vígslubiskupi verður sr. Gísli Jónasson, prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi Eystra. Fyrir altari þjóna einnig: sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni.
Að lokinni messu verður messukaffi í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum.